. - Hausmynd

.

Ættum við íslendingar ekki að íhuga eitthvað svipað?


Nú skelli ég þessu bara fram. Er ekki vel að mér í skattalögum og í raun hverju því sem viðkemur skattinum. Nema þá að ég skila öllu mínu sléttu og flottu og er afskaplega ánægð þegar ég þarf ekki að borga neitt.

Ættum við íslendingar ekki að íhuga hátekjuskatt í þessu árferði sem nú er?

Mér finnst mikilvægt alla vega að skerða ekki meir laun þeirra sem minnst hafa.

Einnig fannst mér athyglisverð hugmynd sem ég las á bloggi um daginn, man því miður ekki hjá hverjum. Þar var því fleygt fram að engin væri í raun með hærri laun en milljón...  Hvað höfum við með meira að gera? Ég sé ekki að það hafi gert þeim sem hafa haft meira á milli handana síðast árið gott.

En hvað segið þið... Hátekjuskatt á Íslandi?


mbl.is Darling sagður íhuga hátekjuskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Það þarf í það minnsta að snúa við þeirri þróun sem hefur verið síðustu ár undir umboði Sjálfstæðisflokksins í fjármálaráðuneytinu að skattar hafa hækkað mest á þá tíund sem minnstar tekjur hafa og minnst á þá tíund sem mestar tekjur hafa. Það er alveg út í hött og á eflaust hlut í því að við erum þar sem við erum í dag :(. Græðgisvæðingin hefur verið með ólíkindum. Þessi skattastefna er þveröfug við það sem eðlilegt getur talist í jafnræðissamfélagi og félagshyggjusamfélagi.

Kristbjörg Þórisdóttir, 24.11.2008 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband