. - Hausmynd

.

Fanný Guðbjörg Jónsdóttir

Fanný Guðbjörg Jónsdóttir

Ótrúlegt hvað bloggið er skemmtilegt. Hef bloggað frá því í desember 2003 en ákvað að taka mér pásu í desember 2006. Pásan er búin, það er alltof mikið um að vera í þjóðfélaginu í dag ég bara gat ekki þagað lengur.

Ég heiti Fanný Guðbjörg Jónsdóttir og bý í miðbæ Reykjavíkur. Ég er uppalin á Siglufirði hjá foreldrum mínum, þau heita Guðrún Auðunsdóttir og Jón Sigurpáll Salvarsson. Ég er ekki alin upp á pólitísku -heimili en einhvern vegin síjaðist þessi áhugi inn hjá mér. Ég hef frá blautu barnsbeini verið iðin við það að tuða, frekjast og rífast svo þessi áhugi kom pabba mínum þreyttum lítið á óvart. Ég á yndislega og kvetjandi foreldra sem veldur því að ég er ung og heilbrigð kona í dag og það er að sjálfsögðu mömmu og pabba að þakka.

Nú er svo fyrir mér komið að ég bý með dásamlegum manni sem heitir Bjarni Sigurður Kristjánsson.
Tengdaforeldrar mínir búa á Siglufirði. Þau heita Ragna Hannesdóttir og Kristján Elís Bjarnason ég er blessunarlega laus við að þola ekki mína tengdaforeldra því yndislegra fólk þekki ég ekki. Það er draumi líkast að komast í blíðuna eða storminn til þeirra, spila, slappa af og njóta samvistar við glaða Siglfirðinga og fá sér einn ískaldann í heitapottinum.
Það nær fullkomnar lífið að eiga góða að og hjá þeim hef ég það gott.

Bjarni er ekki einbirni. Hann á systur sem heitir Oddný og hún er verulega heppinn því hennar maður (Haraldur Axel Einarsson) rekur Sambíó í Keflavík. Hún fær popp og vatn eins og hún getur í sig látið. Ég leyfi því hér að fylgja að Halli er margverðlaunaður fótboltamaður auk þess að hafa fengið heiðranir hingað og þangað meðal annars fyrir að vera besti kennarinn á Reykjanesinu! 

Ingvar "mávur" er elstur og stærstur. Hans mesta og besta verk er Rebekka Rut, hörku dugleg skvísa sem býr á Siglufirði. Æfir fótbolta, skíði, sund og allt sem hægt er að gera og hún er að sjálfsögðu lang best í þessu öllu. Hún er yndisleg og við Bjarni teljum niður dagana til að hitta þessa yndislegu stelpu.

Sjálf er ég langt frá því að vera dekruð þótt ég sé svo sannarlega örverpið á heimilinu. Ég á nefnilega 2 bræður sem hafa tekið sitt pláss.
Annar er fluggáfaður með vöðva en vex ekki skegg, hinum vaxa ekki vöðvar en hann hefur prófað nokkrar eftirminnilegar líkingar af hor/hármottum á sínu fríða loðna andliti, ég þarf vart að taka fram að hann Marinó bróðir minn er alveg hörku gáfaður einstaklingur og alveg skuggalega líkur pabba okkar.
Þeir heita Magnús Jónsson og Marinó Bóas Sigurpálsson.

Magnús er eldri giftur Huldu Björk saman eiga þau þrjú yndisleg börn, Kristófer, Sigrúnu Köru og Grím Guðmann sem öll með tölu halda því fram að ég sé sú allra besta frænka sem völ er á.  Bæði reka þau hjónin sitthvort fyrirtækið. Magnús rekur fyrirtækið Múrinn en Hulda er aðeins peddni og rekur
Zatin

Marinó hefur ennþá ekki fest sig við kvenkynið en mamma og pabbi rákust á hann í kringlunni í desember þar sem ung kona hélt á pokunum fyrir hann. Sú daman er ennþá á reynslulausn en verður kynnt síðar ef vel fer. Nú þegar sumarið er byrjað svarar einstökusinnum stúlka í símann hans, kannski sú sama?

Fyrir nær hálfri öld kynntist mamma mín manni sem heitir Jón Guðmann Jónsson. Í "blindi sinni" ákvað hún að kvænast þessum manni, maðurinn var þá og er enn að margra mati heiftarlega mikill sjarmör og var móðir mín mikið öfunduð. Síðar uppskárum við Magnús DNA frá þessum ágæta manni.  Gamli sjarmörinn sáði öðru fræi og síðar kom rúsínan í pylsu endanum sem var skírð Karitas Sól og hefur svo sannarlega látið okkur systkinin snúast í kringum sig og líkar okkur vel, svo vel að við stöndum í röð og pöntum tilefnin til að hitta okkar yndislegu systur sem við barasta gætum ekki hugsað okkur lífið án. Karitas og pabbi búa saman í Kópavogi svo ekki er langt á milli okkar sem betur fer.

Ég er Framsóknarkvenndi og sit þar sem fastast. Ég nem stjórnmálafræði við HÍ og vinn í fjármálaþjónustu Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Fanný Guðbjörg Jónsdóttir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband